FJÁRHÚSIÐ

Stuðningsmannasíða Snæfells nær og fjær

Takk fyrir frábærann vetur Snæfellingar.

Höfundur: monsi á apríl 24, 2008

Jæja stuðningsfólk Snæfells þá er komið að leiðarlokum í vetur við að sjálfsögðu óskum Keflvíkingum til hamingju og þeirra fólki með þeirra árangur í vetur.

Við megum bera höfuðið hátt, já og bara verulega hátt. Snæfell er eitt af þeim liðum og jafnvel það eina sem á stuðningsmenn frá september – apríl í öllum leikjum hvort sem er útileikjum eða heima í Fjárhúsi. Það hefur verið eftirtektarvert að þegar Snæfell spilar í útileikjum að við höfum stundum verið fleiri en heimamenn á svæðinu.

Ég ætla ekki að halda langa ræðu hérna en ég vill koma smá á framfæri við ykkur fyrst ég er í ham við skrifin. Núna stöndum við upp og klöppum okkur sjálfum á bakið fyrir frábært og skemmtilegt tímabil.

Snæfell eru tvöfaldir bikarmeistarar og það að vera hálfafskrifaðir um áramót sýnir bara þvílíkann karakter í okkar liði og strákarnir eiga það skilið að fá að heyra það frá okkur að sama hvað á gengur að þá er klapp á bakið og stuðningsorð í eyra það fyrsta sem þeir fá er þeir ganga af velli sama hver staðan er og svo uppskerum við eftir því.

Þrátt fyrir þetta síðasta einvígi þá er árangurinn gríðalega góður og nú öndum við að okkur sumrinu förum í Hólminn og á Danska daga tölum um góðu tímana í vetur og hvaða leið við fórum í Bikarleikinn og svo framvegis og byggjum okkur upp fyrir næsta tímabil.

Hérna inni koma til með að vera kannski léttar fréttir af einhverju ef eitthvað fréttnæmt kemur inn á borð. Annars verður þessi síða tilbúin fyrir okkur næsta tímabil sem verður spennandi því þá erum við líka með kvennalið í efstu deild og meira að gera fyrir vikið.

Með bestu kveðju til allra Hólmara og stuðningsfólks Snæfells takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar.

Símon B. Hjaltalín og Jónína A. Víglundsdóttir

ÁFRAM SNÆFELL

5 svör to “Takk fyrir frábærann vetur Snæfellingar.”

  1. MammaMagna sagði

    Ég þakka liðsmönnum öllum kærlega fyrir að hafa fengið að taka þátt í stórkostlegum seinni hluta tímabilsins í vetur og stuðningsmönnum fyrir mikla samstöðu og hlýlegt viðmót. Afi og amma Magna biðja líka fyrir kveðjur oig þakkir fyrir allt. Við tökum upp þráðinn næsta tímabil og gerum að sjálfsögðu eins vel og við getum.

    Áfram Snæfell

    Kveðja, MammaMagna

  2. Kristín Ben sagði

    Við Jóhanna þökkum fyrir aldeilis frábærann vetur. Þetta er búið að vera gott tímabil. Erum strax farnar að hlakka til næsta vetrar. Meistaraflokkur karla: Til hamingju með árangurinn. Snæfell, Snæfell, Snæfell!
    Kveðja, Kristín Ben

  3. Guðrún Erna sagði

    Ágætu Snæfellingar
    Ég vil óska liðsmönnum Snæfells innilega til hamingju með árangurinn í vetur og frábæra skemmtun. Ég hef upplifað það eftir að ég flutti suður hve körfuboltaleikirnir eru skemmtilegur vettvangur til að hitta aðra brottflutta Hólmara og svo að fá tækifæri til að skreppa ,,heim” á leiki. Ég vil svo enn og aftur þakka Símoni fyrir síðuna og vona að við notum hana til samskipta og fyrir tilkynningar. Við stuðningsmenn Snæfells mætum svo galvösk næsta haust og verðum enn duglegri við að styðja liðið okkar.
    ÁFRAM SNÆFELL

  4. bjammi sagði

    Einnig má ekki gleyma því að Stúlkurnar okkar áttu glæsilegt tímabil og eru komnar upp í efstu deild…..til hamingju með það líka

  5. Anna María sagði

    Takk fyrir veturinn öll sömul, þetta hefur verið fábær vetur..
    Og Símon og Ninna þið eigið heiður skilinn fyrir ykkar áhuga og elju.

    Og svo áfram Snæfell………….

    Anna María

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>