FJÁRHÚSIÐ

Stuðningsmannasíða Snæfells nær og fjær

Hvatning frá Árna K. Jónssyni (bróður Nonna Mæju)

Höfundur: monsi á apríl 23, 2008

Sælir Stuðningsmenn ég setti hér að ofan hnapp með textanum í Láttu Hólminn heilla þig svo er bara copy/paste og prenta fyrir leikinn og læra utan sem þið væntanlega kunnið.

Hér er svo Árni.

Jæja Snæfellingar,

Nú erum við komin upp að vegg. Ekkert flóknara en það. Fleiri lið lent í þeirri stöðu. Ekkert að óttast!!! Betri spyrna fyrir vikið. Veit ekki með aðra Snæfellinga nær og fær en ég ætla að mæta vel skeggjaður, í ullarpeysu og stígvélum. Ég veit að Snæfellingar þurfa ekki að vera við glas til þess að mynda góða stemmingu. Nú mætum við öll í Sláturhúsið í Keflavík og leiðum heimamenn til slátrunnar á þeirra velli.

Ég krefst þess að félagar mínir í 73 árgangnum mæti með trommurnar og lúðrana. ÉG FER EKKI FRAM Á MINNA!!!

Þetta er allt spurning um stemmingu!!! Veit að strákarnir í Snæfellsliðinu ætla að spila sinn besta leik á tímabilinu. Þeir ætla a.m.k. að berjast eins og menn. Snæfellsliðið er EKKI að fara að tapa þessu 3-0 án þess að gefa ALLT í þetta. Það kemur ekki til greina. Þeir sem telja að þetta sé tapað fyrirfram geta heima setið.

Nú vinnum við á fimmtudaginn og jöfnum þetta á laugardaginn í Stykkishólmi.

ÁFRAM SNÆFELL!!!

Kv. Einn æstur!!!

5 svör to “Hvatning frá Árna K. Jónssyni (bróður Nonna Mæju)”

  1. Siggi Skúli sagði

    Góður Árni. Þú verður flottur í stígvélunum.
    Ég missi af tveimur næstu leikjum. Næ mánudagsleiknum.
    Nonni var flottur í síðasta leik.

    Hef fulla trú á drengjunum.
    Gleðilegt sumar

  2. Beggi S sagði

    Já það er bara ekkert annað í stöðunni en að vinna á morgun,,,,allir að mæta og sleppa sér og sína svolitla geðveiki (en engan dónaskap)edrúmenskan í fyrirrúmi “eins og vanalega”

    COME BACK SÖGUNNAR HERE WE COME og ekkert helvítis kjaftæði (afsakið orðbragðið)

    Áfram SNÆFELLLL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

  3. Monsi sagði

    Nákvæmlega.
    Ekki dónaskap og ekkert áfengi hjá okkur en vera samt soldið kreisí og sleppa sér

  4. Guðrún Erna sagði

    Sammála strákar, þetta er viðhorfið sem á að ríkja.
    ÁFRAM SNÆFELL!!!!!!!!!!!!!

  5. Kiddi Hjorleifs sagði

    Nu er ad duga eda drepast hef goda tilfinningu fyrir tessum leik held ad vid tokum hann.Fylgist med frå Orebro åsamt mörgum holmurum
    Åfram snaefell

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>