FJÁRHÚSIÐ

Stuðningsmannasíða Snæfells nær og fjær

Frítt í rútu og stuðningsbréf.

Höfundur: monsi á apríl 23, 2008

Svo er hérna bréf að neðan sem Maggi Bærings sendi okkur frá stuðningsmanni erlendis og kemst ekki leikinn.

ÁFRAM SNÆFELL.

Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú fyrir stuðningsmenn félagsins að standa upp og styðja drengina. Vonleysið má ekki taka yfir og smita liði. Félagið hefur aldrei verið nær því að vinna Íslandsmeistaratitilinn þrátt fyrir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum. Keflavík er vissulega með gott lið en lið Snæfells hefur aldrei verið sterkara. “Drengirnir okkar” hafa spilað langt undir getu síðustu tvo leiki og eiga því mikið inni. Með öflugum stuðning frá okkur klára þeir næstu þrjá leiki.

Það hefur einmitt verið einkenni liðsins og ekki síður stuðningsmanna að gefast aldrei upp. Nú dugar ekki bara að mæta á staðinn heldur verða allir að leggja niður feimnina og öskra á strákana.

Við getum verið stolt að liðinu þar sem það hefur nú þegar landað tveimur bikurum á leiktíðinni og með því að koma til baka og vinna næstu þrjá leiki mun þetta lið komast á spjöld sögunar fyrir árangur sem seint verður endurtekinn.

Minnum á að mæta tímalega til að ná í gott sæti. Sætaferðir verða úr Hólminum. Nú fjölmennum við í Keflavík og sínum landanum að stuðningsmenn Snæfells gefast aldrei upp.

ÁFRAM SNÆFELL.

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>