Nú er að stíga upp
Höfundur: monsi á apríl 22, 2008
Sælir Stuðningsmenn.
Ekki fór það eins og við vildum en verum jákvæð og stígum upp.
HALLÓ það er einn leikur eftir og þá er það bara leikurinn til að sýna karakter og er ég ekki bara að tala um strákana heldur okkur líka. Hér ætla ég að grípa í ummæli frá Margréti Pálma:
“Mig langaði að segja að ég var að hlusta á þáttin hans Valtýs Björns á x-inu áðan. Í lok þáttar hringdi inn maður sem var ekki ánægður með stuðningsmenn Snæfells í leiknum í gær…..fannst þeir ekki vera að standa sig….trommusveit Kef er nefnilega mjög hávær með eða án tromma
svo nú verða allir Snæfellingar hvar á landinum sem þeir búa að mæta í Sláturhúsið á fimmtudag og hvetja strákana til sigurs…því ekkert annað kemur til greina en að vinna leikinn…ekki satt”
Þetta kemur frá einhverjum sem við vitum ekki hver er. Við höfum staðið okkur mjög vel finnst mér hingað til, en nú er úrslitaleikur og ekkert nema söngur, hávaðahvatning, læti og sigur af okkar hálfu kemur til greina og ekki vera feimin.
Og hvað var sagt eftir leik hér frá karfan.is og hér frá Stöð2 sport
Svo er gaman að sjá hvað aðrir leikmenn sem lent hafa í klóm Snæfells í úrslitakeppninni og undanúrslitum bikarsins, hafa að segja og hér er Jóhann Árni Ólafsson hjá Njarðvík
Nú er að bíta í skjaldarendur, meira síðar og von er svo á góðum pepp-up pósti seinni partinn á morgun eða um kvöldið þar sem ég tek smá ræðu á þetta og við komum okkur í stuð saman að sjálfsögðu því við erum vel hyrnd úr Fjárhúsinu og getum stangað frá okkur.
Ein mynd af Nonna til gamans í lokin. Sæl að sinni.
Erla Ósk sagði
Það er allt hægt, nú er um að gera að mæta í Sláturhúsið og taka Keflvíkinga úr umferð. Við vitum að það er hægt að fara með sigur af hólmi þrátt fyrir að vera 2-0 undir. Nú er komið að Kelvíkingum að fá að reyna það…. Áfram Snæfell
MammaMagna sagði
Góðan daginn allir sem einn.
Ekki spurning að nú stöndum við saman. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Stuðningslið Snæfells er til sóma, hvar sem er og hvenær sem er og nú bætum við í. Hvernig líst ykkur á að flykkjast til Keflavíkur með hljóðfæri? Heimagerðar hristur eða bara eitthvað sem heyrist hátt í? Við verðum að yfirgnæfa Keflavíkurkórinn. Látum þá finna vel fyrir að við séum mætt í Sláturhúsið.
Áfram Snæfell
Kveðja, MammaMagna
MammaMagna sagði
Sammála.
Nú mætum við öll fyrir eitt og eitt fyrir öll. Látum Keflvíkinga heyra að við séum í húsinu. Mætum með viðeigandi karakter og kurteisi, en gefum ekkert eftir. Ekki neitt!!!!!!! Strákarnir eiga helling inni og ég veit að þeir munu gefa allt, sem þeir spöruðu í síðasta leik, til að stöðva Keflvíkinga. Og það tekst með okkar stuðningi í Sláturhúsinu. Nú verður ekkert til sparað, hvorki hjá leikmönnum né okkur. Við tökum sumardaginn fyrsta með trompi.
Kveðja,
MammaMagna
Björg Arna sagði
Já nú er bara að taka næstu 3 leiki ekki spurning. Hvernig er það er ekki hægt að setja saman eitthvað smá hvatningarlag sem við áhorfendur getum sundið á morgun í sláturhúsinu og yfirgnæft trommusveitina hjá Keflavík.
ÁFRAM SNÆFELL!!!!!!!!!!!!!!
óli ingi sagði
Já… koma bara á fríum rútuferðum frá hólminum sem eru komnar í kef klukkutíma fyrir leik….
Ekkert nema stuðning í keflavík á fimmtudaginn….
Gardar sagði
sælir.. ekki er möguleiki að þið gætuð átt snæfell lagið “Láttu hólminn heilla þig” ? væri hægt að nálgast það einhvervegin ?
Guðrún Erna sagði
Heilir og sælir allir stuðningsmenn Snæfells, nær og fjær. Nú er ég komin til landsins aftur (eins og allir hafi vitað að ég var erlendis) og mæti galvösk í Sláturhúsið á morgun og vonandi verður líka ástæða fyrir mig að skreppa heim í Hólm á laugardaginn. Fögnum nýju sumri með ferð í Reykjanesbæinn og skemmtum okkur saman og styðjum strákana okkar, því þeir eru að standa sig frábærlega vel. Látum í okkur heyra og yfirgnæfum leiðinda trommusláttinn með þróttmiklu klappi og hrópum ÁFRAM SNÆFELL !!!!!!!!!!!!
Bjarki Bróðir sagði
Já áhorfendur snæfells verða að gera miklu betur. Við erum með langbestu áhorfendur landssins og þurfum bara að fara taka á því eins og strákarnir. Nú er það krafa á morgun að allir hólmarar öskri úr sér lungu og lifur allan leikinn. Ekkert ansk. rugl. Ef við gerum þetta og strákarnir fara að spila af krafti tökum við þetta.
Það sem liðið þarf að gera er:
1. Að spila meira inni og ekki hætta því. Sérstaklega Siggi þegar Gunni er á honum. Hann Siggi á ekki að hætta að pósta þó að Gunni sé harður og að berjast því þá er takmarki Keflvíkingana náð. Siggi á að pósta hann aftur og aftur og þá flígur Gunni út af með 5 villur. Einnig að gefa hann á Magna og Mæjuna sem eru alltaf með einhverja maura á sér. Og þessir strákar verða að fara að körfuni ekki enda með því að taka stökk skott, enda með lejupi eða troðslu. Að körfuni alltaf.
2. Hlynur á að dræfa á stóru mennina hjá kef. Sérstaklega Sigga Ísafjarðar tröll því hann er allt of seinn á fótunum. Og hinir liðsmenn snæfells þurfa að fara frá og gefa Hlyni pláss fyrir þetta ekki þvælast fyrir eins og oft í leikjunum.
3. Mæta Tommi og Gunna fyrr. Þeir hafa sett of mikið af þriggja stiga körfum.
4. Minka tapaða bolta. Sérstaklega mikið af óþarfa töpuðum við að gefa bolta á low-postinn.
Það sem áhorfendur þurfa að gera er:
1. Að Öskra Snæfell-Snæfell um leið og byrjað er að kynna kef liðið með show-inu. Og allir að standa upp þegar þetta er og brálast og þannig hirðum við af þeim momentið.
2. Að troma á tromurnar okkar alltaf þegar kef fer að söngla eitthvað lag.
3. Að kalla Mæjan-Mæjan þegar að Nonni kemur inná og þegar hann skorar.
4. Taka svo bara meira á því og lengur heldur en Kef áhorfendur!
ÁFRAM SNÆFELL!!!!!!