FJÁRHÚSIÐ

Stuðningsmannasíða Snæfells nær og fjær

Leikur 4 og fyrsta færsla

Höfundur: monsi á apríl 13, 2008

Sæll stuðningsmaður.

Liðin mætast í leik 4 á morgun mánudaginn 14. apríl kl. 20:00 og er deginum ljósara að Fjárhúsið verður troðfullt. Við ætlum okkur alla leið og þar sem leikurinn er ekki fyrr en kl 20 þá er ekki úr vegi að skella sér vestur sem tekur enga stund.

www.snaefell.is

Það er verið að gera síðu sem verður upplýsingasíða okkar stuðningsmanna Snæfells og verður nefnd Fjárhúsið. Þar verða helstu upplýsingar um leiki og bara litlar fréttir og upplýsingar en engar stórar greinar sem við látum fréttamiðla um. Einnig verða tenglar tengdir körfu, Stykkishólmi, og veðurfærð fyrir þá sem ætla vestur á leiki.

Þetta tekur smátíma að þróast og er ég að prufa þetta hvort ekki sé stemming fyrir þessu. Þetta er í bloggsíðuformi og fer þetta aðeins af stað núna en meira á fullt á næsta tímabili. Upplýsingar koma samt í gegnum póstlistann með tengli á upplýsingasíðuna.

mynd: Snorri Örn Arnaldsson tekin af karfan.is

3 svör to “Leikur 4 og fyrsta færsla”

  1. Guðrún Erna sagði

    Heilir og sælir allir stuðningsmenn Snæfells
    Frábært framtak sem ber að þakka Símoni og er vonandi að þetta verði líflegur vettvangur til skrifa og skoðanaskipta. Á morgun fjölmennum við vestur og styðjum okkar lið til sigurs.
    ÁFRAM SNÆFELL!!!!
    Kveðja, Guðrún Erna

  2. Maggý Hrönn sagði

    Ég segi barasta takk fyrir þetta frábæra framtak.

    Kveðja, Maggý HRönn

  3. bjammi sagði

    Glæsilegt…nú er bara að taka þetta á morgun og fara alla leið…

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>