FJÁRHÚSIÐ

Stuðningsmannasíða Snæfells nær og fjær

Fjárhússíðan hættir!

Höfundur: monsi á maí 12, 2009

Sælir stuðningsmenn.

Fjárhússíðan mun hætta frá og með núna nema einhverjir áhugasamir vilji taka alfarið við þessari síðu. Ég hef ekki frekari tíma og hendi þessu þvi fram hérna til að sjá hvort einhverstaðar leynist einhverjir.

Útþurrkunartími verður ekki fyrr en eftir sumarið og þá verða vonandi einhverjir áhugasamir komnir.

Takk fyrir.
Símon.

Skrifað í -Snæfell- | 1 ummæli »

Snæfell í frí

Höfundur: monsi á apríl 1, 2009

Þá er það ljóst eftir að Grindavík höfðu sigurinn í fjórða leik liðanna 75-85 og komust áfram 3-1 úr einvíginu. Þeir mæta nú KR í úrslitum. Leikurinn var jafn og skemmtilegur framan af og engin leið að koma höndum á það hvort liðið tæki af skarið í lokin. Grindavík spilaði fasta vörn og pressu sem Snæfell átti fá svör við í lokahlutanum og skópu forystu sína þar.

Við Snæfellingar getum verið ánægð með árangurinn í vetur þó alltaf sé stefnt að sigri í hverjum leik. Það nú einu sinni þannig að eins og af stað var farið voru menn ekki bjartsýnir fyrir okkar hönd nema auðvitað við Snæfellsfólk þó auðvitað vilji allir fyrsta sætið þá er þetta góður árangur engu að síður sem við getum verið stolt af og klappað okkur mönnum og konum á bakið fyrir það.

Andi liðsins og áhorfenda hefur ávallt verið til fyrirmyndar og getum við horfst í augu við að vera Snæfelli til sóma hvar sem er svo um sé talað á velli sem og stúku. Takk fyrir frábærann vetur og svo er þetta bara á uppleið næsta tímbil ekki spurning um neitt annað.

Umfjöllun úr leik 4

Myndasyrpa frá Eyþóri Ben

Tölfræði

Símon B. Hjaltalín.

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Snæfell að hressast verulega

Höfundur: monsi á mars 28, 2009

Stórleikur í Grindavík vannst 104-97 eftir tvær framlengingar og ljóst að mikill sigurvilji er ennþá í Snæfellsliðinu og eitthvað sem var vitað allann tímann og staðan er 2-1 og allt opið. Leikurinn þróaðist þannig að Snæfell voru alltaf skrefinu á undan og tækluðu Grindvíkinga frá upphafi. Þeir komust 18 stigun yfir mest og náðu að halda öllum sóknaraðgerðum Grindavíkur niðri með seigri vörn.

Grindavíkingar voru einungis búnir að skora 43 stig eftir 3 leikhluta. Snæfell skóp forysti sína í stöðunni 23-23 og skorðuð 20 stig á móti 7 stigum Grindavíkur. Grindavík kom svo til baka í lokinog unnu fjórða hluta 33-18 en pressa og stíf vörn kom þeim inn í leikinn. Framlengingarnarvoru þeim þó ofviða, sérstaklega önnur og Snæfell setti niður vítin sín og náðu að halda haus sem sýnir að gríðargóður karakter er í strákunum og eru þeir alls ekki síðra lið en Grindavík og eiga vel heima í lokarimmunni.

Umfjöllun

Tölfræði

Fjórði leikur er á þriðjudaginn 31.mars í Stykkishólmi.

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Þriðji leikur

Höfundur: monsi á mars 27, 2009

vs

Jæja Snæfellsfólk nær og fjær þá er þriðji leikurinn á morgun (laugd. 25. mars) kl 15.15 í Grindavík. Hann fór ekki að óskum leikur 2 sem endaði 81-84 en nú er bara að taka úrslitalaik á þetta og fara á fullt span og sýna rétt andlit í stúkunni.

Heyrst hefur að menn séu að þjappa sér saman í liðinu og ætli að vera saman í flatsæng í náttfatapartý í nótt til að skapa þéttari stemmingu innan liðsins og taka saman hafragraut og lýsi í fyrramálið eins og ekta sveitamönnum úr Hólminum sæmir.

Umfjöllun úr leik 2

Myndasyrpa Eyþórs Ben

Tölfræði leiksins

Við hittumst svo öll sem eitt í Grindavík

athugið að leikurinn byrjar kl 15:15.

ÁFRAM SNÆFELL.

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Lok og læs í Grindavík

Höfundur: monsi á mars 24, 2009

30 stig frá Luc Wagner dugðu skammt

Okkar mönnum var skellt í Grindavík 110-82 þar sem sterkir Grindvíkingar réðu lögum og lofum. Grindvíkingar komu strax uppúr miðjum fyrsta hluta með 13-0 kafla og Snæfell átti aldrei svör eftir það og Grindavík jók muninn enn meir með hröðum sóknum og stífum varnarleik.

Nánari umfjöllun hérna

Myndasyrpa

Tölfræði hérna

Nú VERÐUM við Snæfellingar að fylla Fjárhúsið á miðvikudaginn 25. mars allir sem einn og þá meina ég bílaröð úr öðrum landshlutum líka. Stuðningur beint í æð er það sem dugar og sýndi sig í fyrra þegar við tókum Grindavík 3-1.

Fyllum húsið af eldrauðum sveitamönnum.

Áfram Snæfell.

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Leikdagar Grindavík vs Snæfell undanúrslit

Höfundur: monsi á mars 21, 2009

Grindavík – Snæfell

1. leikur 23. mars, mánud. kl. 19.15 Grindavík-Snæfell  >>Grindavík

2. leikur 25. mars, miðvd. kl. 19.15 Snæfell-Grindavík   >>Stykkishólmur

3. leikur 28. mars, laugard. kl. 15.15 Grindavík-Snæfell  >>Grindavík

4. leikur 31. mars, þriðjd. kl. 19.15 Snæfell-Grindavík  >>Stykkishólmur (EF ÞARF)

5. leikur 2. apríl, fimmtud. kl. 19.15 Grindavík-Snæfell  >>Grindavík (EF ÞARF)

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Snæfell vann Stjörnuna 2-1 og komnir áfram

Höfundur: monsi á mars 20, 2009

mynd: Eyþór Benediktsson

Eftir afleitann annann leikinn í Garðabæ sem fór 99-79 fyrir Stjörnuna og var ekki bjóðandi upp á til lesningar þá kláruðu strákarnir þriðja og  jafnframt oddaleikinn með miklum spennuleik í Fjárhúsinu og voru viðkvæmir beðnir um að halda sig heima. Myndir úr leik 2 í Garðabæ og    samtal við Sigga og Kjartan eftir leik.

Snæfell sigraði sem sagt 73-71 eftir æsilegar lokamínútur.

Leikurinn var jafn framan af 1. hluta en Snæfell tók sig á í byrjun 2. hluta og komust í 13 stiga mun 30-17og voru þeir að halda forystunni þangað til í 4. hluta þegar Stjarnan sótti á og komust einu stigi nær 72-71 en Nonni setti niður síðasta stigið úr víti og Stjarnan náði ekki að gera neitt eftir það á 3.5 sek.

Snæfell er þá komið áfram og mæta Grindavík í undanúrslitum líkt og í fyrra.

Nonni var með 20 stig, Siggi 17stig og 9 frák, Hlynur 14 stig og 12 frák.

Umfjöllun hérna

Tölfræði hérna

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

1-0 fyrir Snæfell

Höfundur: monsi á mars 14, 2009

Góður sigur 93-81 vannst á Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í 8 liða úrslitum og leiðum við Snæfellingar 1-0 en tvo sigra þarf til að komast í 4 liða undaúrslitin. Leikurinn var jafn framan af og skiptust liðin á að leiða fram að hálfleiknum þar sem Snæfell var yfir 40-38.

Magni kom sterkur inn í leikinn og tók málin í sínar hendur ásamt fleirum eins og Sigga og Braca í 9-0 kafla í upphafi síðari hálfleiks sem skóp forystu Snæfells sem var ekki látin af hendi og sigur í höfn 93-81. Snæfell hafði yfirburði í fráköstum 47 á móti 24 svo eitthvað sé nefnt.

Siggi setti 23 stig, Magni og Braca 15 stig hvor.

Nánari tölfræði er hérna

Umfjöllun af Karfan.is hérna

Leikur 2 er í Garðabæ á mánudaginn 16. mars kl 19.15

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Snæfell – Stjarnan 8-liða úrslit

Höfundur: monsi á mars 10, 2009

VS  

1. leikur. Laugardaginn 14. mars kl 16.00 Fjárhúsinu Stykkishólmi.

2. leikur. Mánudaginn   16.mars kl 19.15 Ásgarði Garðabæ.

3. leikur (odda) Fimmtudaginn 19.mars kl 19.15 Fjárhúsinu Stykkishólmi

Svo er málið að mæta vel allir stuðningsmenn sem vettlingi geta valdið og taka þetta með stæl allir sem einn og sameinast í bíla í Hólminn og svo í Garðabæinn. Hvetjum okkar lið til sigurs.

ÁFRAM SNÆFELL

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »

Snæfell vann Njarðvík og mætir Stjörnunni

Höfundur: monsi á mars 9, 2009

myndir: Eyþór Ben. Karfan.is

Snæfell sigraði Njarðvík og voru lokatölur 96-80 í síðasta leik Iceland express deildarinnar og var leikurinn kafla skiptur þangað til í fjorða hluta þar sem Snæfell tóku sig til og unnu sig fjær Njarðvík. Magni var heitur í gær með 23 stig og gott að sjá hann koma inn í liðið svona hressann fyrir úrslitin. Wagner setti 18 stig og hélt mönnum við efnið í lokin.

Núna tekur við úrslitakeppni Iceland express og þar mætum við Justin Shouse og félögum úr Stjörnunni sem að vann Fsu á meðan ÍR tapaði fyrir Grindavík. Fljótt fer að koma mynd á dagsetningar varðandi fyrtsu umferð en það verður kunngert á KKÍ, hérna á síðunni og einnig á Snæfell.is

Átta liða úrslitin hefjast helgina 14. og 15. mars.

Við eigum heimavallarrétinn og komum til með að byrja á heimaleik.

Umfjöllun Snæfell-Njarðvík

Tölfræði

Myndasyrpa frá Eyþóri Ben

Skrifað í -Snæfell- | Leave a Comment »